Michael Appleton, knattspyrnustjóri Portsmouth, hefur staðfest að íslenski varnarmaðurinn Hermann Hreiðarsson sé á leið til Coventry. Gengið verður frá félagaskiptunum um helgina. Hermann er gríðarlega reyndur og hefur leikið með Charlton, Ipswich, Wimbledon, Brentford og Crystal Palace í enska boltanum.