HK í heimsókn í kvöld
Karlalið ÍBV tekur á móti HK í kvöld í Olísdeild karla. Fyrirfram væri hægt að reikna með öruggum sigri ÍBV enda HK langneðst í deildinni og er fallið á meðan ÍBV er í öðru sæti. En það er vel þekkt að lið sem eru fallin, mæta afslappaðri til leiks og geta verið hættuleg. Eyjamenn mega líka ekki við því að tapa stigum gegn HK enda eru Valsmenn aðeins þremur stigum á eftir ÍBV í þriðja sæti en annað sætið er afar mikilvægt því það gefur heimaleikjaréttinn í úrslitakeppninni.
Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV, segir að leikurinn gegn HK gæti orðið erfiðari en margur heldur. �??�?etta er andlegt próf fyrir okkar leikmenn. HK er fallið og auðvelt að vanmeta liðið. En við erum einfaldlega í þeirri stöðu að við megum ekki vanmeta nein lið í þessari deild. �?að eru ekki allir sem ráða við það að fara í svona leiki, þar sem þú ert álitinn sterkari aðilinn en það sem við leggjum mikla áherslu á er að bæta okkur fyrir úrslitakeppnina til að eiga möguleika gegn liðum eins og Haukum og Val. Uppleggið í næstu leikjum er að sýna framfarir og auðvitað ná í þau stig sem við þurfum.�??
�?ið tryggðuð ykkur sæti í úrslitum í síðasta leik. Er það framar vonum?
�??�?etta er auðvitað frábær árangur hjá nýliðum að komast í úrslitakeppni og vera í toppbaráttu. Við renndum svolítið blint inn í mótið í haust og ég viðurkenni það alveg að ég þekkti mjög lítið til þeirra leikmanna sem hér eru. ÍBV hafði verið í 1. deild lengi og það verður að segjast eins og er að leikmenn í 1. deild fá ekki mikla athygli. En við tökum þetta leik fyrir leik og ég held að það henti þessu liði vel. Við erum kannski ekki með bestu leikmennina í okkar liði en liðsheildin er mjög sterk og góð stemmning í kringum liðið. Við höfum lent í því að fara fram úr okkur og þá er okkur kippt snögglega niður á jörðina aftur en við lærum af því. Við þurfum að hafa fyrir því að vinna öll hin liðin sjö í deildinni og HK er engin undantekning á því.�??
Verður erfitt að halda öðru sætinu
Hvernig meturðu möguleikana á að halda öðru sætinu?
�??�?að verður erfitt. Við þurfum bara að byrja á því að vinna HK, þá eigum við ennþá möguleika. Eftir það verðum við að vinna ÍR og svona heldur þetta áfram. Við horfum ekkert lengra en á næsta leik. En því er ekki að neita að þetta er í okkar höndum. Annað sætið gefur okkur heimaleikjaréttinn í undanúrslitum og það væri frábært að ná því. Við eigum orðið sterkasta heimavöllinn í deildinni, erum með frábæran stuðning á pöllunum og Hvítu riddararnir hafa sett punktinn yfir i-ið með sínu framtaki. �?nnur lið óttast það að koma til Eyja og hér líður okkur best. �?að er mikil stemmning í kringum handboltann í Eyjum og það skilar sér niður í yngstu flokkana,�?? sagði Gunnar að lokum.

Nýjustu fréttir

Aðalfundur krabbavarnar í gær
Vestmannaeyjar skila milljörðum – en fá hvað í staðinn?
Íþróttamaður mánaðarins – Haukur Leó
Bæjarfulltrúar tjá sig ekki um útboð heilsuræktar
Úrslitakeppnin af stað – ÍBV tekur á móti KA
Árni Sigfússon – Um Eyjagöng
Bjartsýni á framtíð Eyjanna á erfiðum tímum
Marsralli um það bil að ljúka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.