Hrafnhildur �?sk Skúladóttir, fyrrum landsliðskona í handbolta, mun taka við þjálfun úrvalsdeildarliðs ÍBV fyrir næsta tímabil.
Mbl.is greindi fyrst frá þessu. Hrafnhildur er leikjahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins frá upphafi en hún lék 170 landsleiki á löngum og farsælum ferli.
Hrafnhildur tekur við starfinu af Jóni Gunnlaugi Viggóssyni, sem hættir með ÍBV eftir þessa leiktíð. ÍBV er enn í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í Olísdeild kvenna en Eyjakonur mæta Gróttu í undanúrslitunum.
Hrafnhildur hefur reynslu af þjálfun yngri flokka en þetta verður frumraun hennar sem þjálfari meistaraflokks. Hrafnhildur lagði skóna á hilluna vorið 2014, eftir að hafa leitt Valskonar að enn einum Íslandsmeistaratitlinum.