Að vera sjálfstæðismaður er, að mínu mati, fyrst og fremst að trúa á frelsi einstaklingsins og ábyrgðina sem því fylgir. Sú trú hefur mótað mína sýn og verið leiðarljós í minni þátttöku í stjórnmálum.
Undanfarin fjögur ár hef ég gengt ýmsum trúnaðarstörfum, meðal annars sem nefndarmaður í framkvæmda- og hafnarráði og setið í stjórn Sjálfstæðisflokksins. Sú reynsla hefur verið bæði krefjandi en jafnframt afar gefandi og styrkt mig í þeirri sannfæringu að virk þátttaka skiptir máli.
Að vera hluti af Sjálfstæðisflokknum finnst mér gefandi vegna þess að þar mætast skýr grunngildi og virðing fyrir ólíkum skoðunum. Fyrir mér vegur þyngst frelsi og trú á einstaklinginn, trúin á að allir sem vilja geti, allir séu velkomnir. Að öllum sé frjálst að fara, en að það sé betra að vera, standa með sjálfum sér, sínum skoðunum og taka þátt í uppbyggilegu samtali.
Ég trúi á skoðanaskipti, samvinnu og það að vinna saman að betri Vestmannaeyjum.
Prófkjör er að mínu mati ein besta leiðin til að velja framboðslista, lýðræðislegt og gegnsætt ferli þar sem valið fer ekki fram við kaffiborðið heima, heldur meðal fólksins sjálfs. Í Sjálfstæðisflokkinn hafa allir með lögheimili í Vestmannaeyjum frelsi til að skrá sig, taka þátt og hafa áhrif á þann lista sem flokkurinn býður fram.
Ég hef því ákveðið að bjóða mig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í 4. – 5. sæti fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Ég óska eftir ykkar stuðning og hvet ég ykkur öll til að taka þátt, hvort sem er með framboði eða með því að nýta kosningaréttinn í prófkjörinu.
Áfram ég, þú og frelsið.
Hannes Kristinn Sigurðsson
Frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.