ÍBV og KR mættust í Pepsi-deild karla rétt í þessu þar sem lokatölur voru 3:1, heimamönnum í vil.
Andri �?lafsson, fyrirliði ÍBV, kom Eyjamönnum á bragði eftir einungis átta mínútna leik. Sindri Snær Magnússon tvöfaldaði síðan forystuna fyrir ÍBV með frábæru skoti utan af velli. KR-ingar voru hins vegar ekki lengi að svara en á 42. mínútu minnkaði Tobias Thomsen metin fyrir Vesturbæinga með fínu skallamarki og var staðan 2:1 í hálfleik. Eyjamenn byrjuðu seinni hálfleik af krafti og var Sindri Snær búinn að gera sitt annað mark og þriðja mark ÍBV á 47. mínútu. Fleiri urðu mörkin ekki og verðskuldaður sigur Eyjamanna staðreynd.
�?skar Pétur Friðriksson, ljósmyndari Eyjafrétta, var að sjálfsögðu á vellinum til að taka
myndir.