Kvennalið ÍBV í handbolta tapaði gegn Haukum á útivelli, í 19. umferð Olís deildar kvenna í dag. Leiknum lauk með tveggja marka sigri Hauka, 25-23. Fyrir leikinn höfðu Eyjakonur unnið fjóra leiki röð.
Haukar byrjuðu leikinn betur og voru mjög sterkar varnarlega. Eyjakonur skoruðu aðeins eitt mark á fyrstu 13 mínútum leiksins. Eftir stundarfjórðung var staðan 5-2 fyrir Haukum. Haukar voru yfir það sem eftir lifði hálfleiksins og voru með þriggja marka forystu, 15-12, í hálfleik.
Haukar voru sterkari í seinni hálfleik og komust sex mörkum yfir á upphafs mínútunum. Þegar um 15 mínútur voru eftir var staðan 22-18 fyrir Haukum. Eyjakonur bitu meira frá sér á lokamínútum leiksins og náðu að minnka muninn í eitt mark, 23-22, þegar átta mínútur voru til leiksloka. Haukar hins vegar gáfu ekkert eftir og unnu að lokum tveggja marka sigur. Lokatölur leiksins 25-23.
Eftir leikinn eru Eyjakonur enn í 2. sæti deildarinnar með 30 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Vals. Haukar eru í 3. sæti 23 stig.
Sandra Erlingsdóttir var markahæst í liði ÍBV með sex mörk. Rakel Oddný Guðmundsdóttir var markahæst í leiknum með sjö mörk. Amalia Frøland átti góðan leik í liði ÍBV og varði 15 skot.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 6 mörk, Birna Berg Haraldsdóttir 5, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 3, Ásdís Halla Hjarðar 2, Kristrún Ósk Hlynsdóttir 2, Agnes Lilja Styrmisdóttir 1, Amelía Dís Einarsdóttir 1.
Aðeins tvær umferðir eru eftir af Olís deild kvenna. ÍBV mætir ÍR næst, á heimavelli, miðvikudaginn 18. mars kl. 18:00. Þær sækja svo Val heim í lokaumferðinni, sem fer fram laugardaginn 21. mars.