Hinn eini sanni Ingó úr Veðurguðunum mun leika á barnaskemmtun í Höllinni í dag milli 18 og 19. Ingó er kominn til Eyja en hann og hljómsveit hans munu jafnframt spila á Próflokaballi í Höllinni í kvöld. Aðgangseyrir á barnaskemmtunina er 500 krónur en kappinn gaf út geisladisk fyrir jólin og gráupplagt að fá hann áritaðann í leiðinni.