Eins og staðan er í dag, virðist sæti í úrvalsdeild vera fjarlægjast hjá karlaliði ÍBV því gengi liðsins undanfarnar vikur hefur verið hræðilegt. Flestum þótti nóg um þegar liðið steinlá fyrir Stjörnunni á heimavelli á dögunum en í dag, gegn toppliði ÍR, buðu leikmenn ÍBV upp á svipaða frammistöðu og gegn Garðbæingum. Það þurfti því ekki að spyrja að leikslokum, ÍR-ingar unnu auðveldan sigur 27:34 eftir að staðan í hálfleik var 12:16.