Framboðslisti bæjarmálafélagsins Fyrir Heimaey í sveitarstjórnarkosningunum 26. maí var samþykktur einróma á fjölmennum fundi nú síðdegis. Í efstu fjórum sætunum eru Íris Róbertsdóttir, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Elís Jónsson og Guðmundur Ásgeirsson. Á næstu dögum verður haldið áfram með málefnastarf framboðsins sem verður kynnt von bráðar.
Framboðslistinn í heild er þessi:
1. Íris Róbertsdóttir, fjármálastjóri / grunnskólakennari
2. Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri / viðskiptafræðingur
3. Elís Jónsson, tæknifræðingur / vélstjóri
4. Guðmundur Ásgeirsson, endurskoðandi / fjárfestir
5. Hrefna Jónsdóttir, starfsmannastjóri / þroskaþjálfi
6. Sveinn Rúnar Valgeirsson, skipstjóri
7. Kristín Hartmannsdóttir, gæðastjóri / tækniteiknari
8. Alfreð Alfreðsson, leiðsögumaður
9. Aníta Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri / viðskiptafræðingur
10. Hákon Jónsson, nemi
11. Guðný Halldórsdóttir, sjúkraliði
12. Styrmir Sigurðarson, bráðatæknir / yfirmaður sjúkraflutninga á
Suðurlandi
13. Emma Sigurgeirsdóttir Vídó, leikskólakennari
14. Leifur Gunnarsson, eldri borgari