Ísfell semur við Fishering Service
Til að styrkja stöðu Ísfells á flottrollsmarkaðinum hér á landi og á Grænlandi hefur fyrirtækið samið við Fishering Service í Kaliningrad um framleiðslu á flottrollum og pokum fyrir uppsjávarveiðar. Fishering Service er eitt fremsta fyrirtæki í heiminum í dag í framleiðslu á flottrollum og pokum.
Fyrirtækið var stofnað af Andrey Fedorov árið 1993 en hann starfaði áður sem trollmeistari á togurum og hefur mikla reynslu af öllu sem kemur að veiðum og veiðarfærum. Frá stofnun hefur Fishering Service framleitt yfir 5.000 flottroll og poka af öllum stærðum.
Samkvæmt Dmitriy Fedorov sölustjóra Fishering Service liggja þeir með góðan lager af vörum sem þeir nota í trollin. Dmitriy talaði um að �??Við getum framleitt meðalstærð af flottrolli á um tveimur vikum og flutningur til Íslands getur svo tekið tekið 7-14 daga,�?? útskýrir hann.
Hjá Fishering Service vinna um 150 manns og að hluta til er unnið á tveimur vöktum. Fishering Service framleiddi um 250 flottroll og poka á síðasta ári sem þeir seldu víða um heim, og má því segja að það séu flottroll frá Fishering Service á öllum helstu fiskveiðisvæðum í heiminum og notendalisti skipa er langur.
Nánast allar gerðir flottrolla
Frá árinu 2008 starfaði Fishering Service með Atla Jósafatssyni og Guðmundi Vigfússyni á Íslandi, en nú er svo komið að Guðmundur og Atli starfa ekki lengur fyrir Fishering Service. �?ví lá beinast við fyrir þá að taka upp samstarf við nýja aðila á Íslandi. Samningurinn felur í sér að Ísfell sér um sölu og viðhald á trollum frá Fishering Service á Íslandi og Grænlandi jafnfamt munu félögin hafa með sér samstarf um þróun á veiðarfærum.
�??Fishering Service framleiðir nánast allar gerði flottrolla, fyrir allar veiðar, svo sem, þorsk, ufsa, karfa, makríl, sardínu, sardinellu, hake, hoki, síld, loðnu og krill, svo eitthvað sé nefnt,�?? segir Dmitriy. �??Trollin eru svo með ýmsum útfærslum úr tígul- eða sexkantsmöskva, allt eftir því hvað á að veiða hverju sinni.�??

Nýjustu fréttir

Löndun Breka VE í Grundarfirði – flókið verkefni og fumlaus vinnubrögð
Gong slökun, endurstilling í hraða nútímans
Bæjarráð gagnrýnir samgönguáætlun
Elliði með fimm mörk í stórsigri Íslands
Herjólfur í Þorlákshöfn í dag og á morgun
Orkumálin til skoðunar hjá ráðherra
Dagvistunarmál til umræðu á fundi fræðsluráðs
Veit Inga hvað hún syngur?

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.