Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði seinni leik sínum gegn Svartfjallalandi, í undankeppni EM kvenna í Podgorica í dag. Leiknum lauk með 33-24 sigri heimakvenna. Eyjamaðurinn Arnar Pétursson er þjálfari liðsins og þá voru Eyjakonurnar Sandra Erlingsdóttir, Elísa Elíasdóttir og Díana Dögg Magnúsdóttir á sínum stað í hópnum. Andrea Jacobsen var einnig í hópnum en hún gengur til liðs við ÍBV í sumar.
Leikurinn var nokkuð jafn framan af en Svartfellingar komust í 7-4 eftir stundarfjórðung. Þær héldu áfram að leiða allt þar til loka fyrri hálfleiks þegar íslenska liðið náði að jafna leikinn. Staðan í hálfleik 13-13.
Ísland byrjaði síðari hálfleikinn sterkt og komust yfir á upphafsmínútunum. Eftir tíu mínútna leik var staðan 18-20 Íslandi í hag og litu hlutirnir vel út. Svartfjallaland jafnaði leikinn í 20-20 og eftir það komust þær á lagið og voru mun sterkari á lokakafla leiksins. Níu marka sigur Svartfellinga staðreynd. Lokatölur leiksins 33-24.
Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Ísland, Sandra Erlingsdóttir eitt mark og Elísa Elíasdóttir eitt.
Svartfjallaland er á toppnum í riðli tvö með sex stig. Færeyjar og Portúgal eru með fjögur stig í 2. – 3. sæti og Ísland er á botni riðilsins með tvö stig.