ÍBV átti mjög góðan fyrri hálfleik þegar �?róttur R. kíkti í heimsókn í fyrsta leik kvöldsins í Pepsi-deildinni.
Eyjamenn skoruðu snemma leiks en náðu ekki að bæta við öðru marki þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fram að leikhléi.
Gestirnir komu mun sterkari inn í síðari hálfleikinn og jöfnuðu á 70. mínútu þegar Derby Rafael Carrillo, markvörður ÍBV, missti skot frá Aroni �?órði Albertssyni í gegnum klofið á sér.
Bæði lið fengu tækifæri til að pota inn sigurmarki en það hafðist ekki og ljóst að �?róttarar þurfa að vinna upp tíu stig í fimm síðustu umferðum tímabilsins til að halda sér uppi. ÍBV er fjórum stigum fyrir ofan fallsæti og �?róttur er á botninum, níu stigum frá öruggu sæti.