Kap VE 4, uppsjávarskip Vinnslustöðvarinnar, strandaði þegar skipið var að koma til löndunar fljótlega eftir hádegi. Skipið sat fast norðan við Herjólfsbryggjuna og sat þar fast í um hálftíma, þegar það losnaði af sjálfsdáðum. Gísli Garðarsson, skipstjóri segir að þarna sé sandhryggur sem myndist þegar Herjólfi er stýrt að bryggju og ekkert hafi verið gert í að fjarlægja hann.