Kennir Eyjamönnum að spara pening
Sveinn Waage
Sveinn Waage
Íslandsbanki býður upp á námskeið í Meniga í dag, fimmtudag klukkan 17:00 í Akóges. Meniga er heimilisbókhald Íslandsbanka og í tilkynningu frá bankanum kemur fram að allir séu velkomnir á námskeiðið. Eyjamaðurinn Sveinn Waage er nýtekinn við sem markaðsstjóri Meniga en síðustu fjögur ár hefur hann starfað sem vörumerkjastjóri hjá �?lgerðinni. Meniga er vefur sem er sérhannaður til að aðstoða fólk við að stjórna heimilisfjármálunum og nýta peningana sína sem best. Viðskiptavinir Íslandsbanka, Arion banka og Landsbanka geta allir nýtt sér þjónustu Meniga í gegnum heimabanka sína.
Hvernig námskeið er þetta sem þið bjóðið upp?
�??Við munum fara yfir Meniga heimilisbókhaldið sem er frítt á netinu, ýmist í gegnum heimabankann eða í gegnum meniga.is. Við munum fara yfir helstu fídusa og virknina og sýna fólki hversu bráðsniðugt, gagnlegt og skemmtilegt þetta er. Við hvetjum fólk til að mæta.�??
Sveinn segir það misjafnt hversu duglegt fólk er að halda heimilisbókhald en bætir við að Meniga sé góður kostur fyrir þá sem hafa kannski ekki sinnt heimilisbókhaldinu nógu vel til þessa, eða eru að hefja búskap. �??Sumir eru bara með þetta �??í veskinu�?? en aðrir setja allt upp í Excel. Með Meniga ertu með tól sem gerir þetta að mestu fyrir þig sjálfvirkt. Sumir segja að þeir hafi alls engan áhuga á að skoða neysluna sína en við spyrjum þá á móti; �?ú vilt vita hvað þú færð útborgað, ekki satt? Að hafa ekki áhuga á að vita í hvað þessi útborgun fer, er ekki vænlegt til lengdar.�??
Alltaf hægt að læra meira um bjór
Sveinn gerir reyndar gott betur en að kenna okkur Eyjamönnum hvernig á að passa upp á peningana okkar, því hann ætlar líka að kenna okkur að drekka bjór. �??Með Meniga lærum við að hafa yfirsýn og þar með geta lagt til hliðar peninga fyrir því sem okkur þykir skemmtilegt. Eins og t.d. að kaupa bjór, fara í bjórskóla og heimsækja staði þar sem bjórmenning er í hávegum höfð,�?? sagði Sveinn í gamansömum tóni en Bjórskólinn verður starfræktur í höfuðstöðvum Visku við Strandveg á föstudagskvöldið.
Viðtalið má lesa í heild sinni í Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

Aðalfundur krabbavarnar í gær
Vestmannaeyjar skila milljörðum – en fá hvað í staðinn?
Íþróttamaður mánaðarins – Haukur Leó
Bæjarfulltrúar tjá sig ekki um útboð heilsuræktar
Úrslitakeppnin af stað – ÍBV tekur á móti KA
Árni Sigfússon – Um Eyjagöng
Bjartsýni á framtíð Eyjanna á erfiðum tímum
Marsralli um það bil að ljúka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.