Frekar róleg vika er að baki hjá lögreglunni í Eyjum þrátt fyrir mikinn fjölda fólks íbænum. Eitt af því sem kom inn á borð lögreglunnar var að ekið var á bílskúrshurð á íbúðarhúsi í bænum en ökumaður hafði ekið í burtu. Lögreglan hafði upp á ökumanninum sem sagði að fát hefði komið á sig þegar hann ók á hurðina og hann hefði ekið burt. Við höggið skemmdist ökutækið sem var inni í bílskúrnum. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar sem má lesa hér að neðan.