KFS tekur í dag á móti KB í 32ja liða úrslitum Borgunarbikarkeppninnar en leikurinn fer fram á Helgafellsvelli og hefst klukkan 18:00. Eyjamenn eiga tvo fulltrúa í 32ja liða úrslitunum en ÍBV sækir Víking Ólafsvík heim næstkomandi þriðjudag. Bæði KFS og KB leika í 3. deild, reyndar í sitthvorum riðlinum en KB hefur farið illa af stað í Íslandsmótinu.