Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:38 og mæta svo á Bárugötuna í dag. Til þess að vekja athygli á launamun kynjanna á atvinnumarkaðnum.
Kjörorð hans er Kjarajafnrétti strax! Maríanna Traustadóttir, sérfræðingur í jafnréttis- og umhverfismálum hjá Alþýðusambandi Íslands, segir að vekja þurfi athygli á stöðu kvenna á atvinnumarkaðnum. Síðustu kannanir VR, BHM og SFR sýni kynbundin launamun sem hafi verið að aukast eftir hrun. �??Um leið og hagvöxtur eykst virðast konur dragast aftur úr,�?? segir Maríanna í Morgunblaðinu í dag.