Konur ætla að minnast kvenréttindagsins 19. júní í Sagnheimum. �?ar verður boðið uppá súpu kl. 12 á hádegi. Gunnhildur Hrólfsdóttir rithöfundur og sagnfræðingur ætlar að kynna óútkomna bók sína �??�?ær þráðinn spunnu�?? en hún fjallar um konur í Eyjum 1835-1980. Í fyrirlestrinum fjallar hún um nokkrar þeirra kvenna sem með fórnfýsi, hugrekki og glaðværð áttu sinn þátt í uppbyggingu bæjarlífsins í núverandi mynd.