Kristján Þór staðfestir loðnuráðgjöf
26. janúar, 2021

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, gerði á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun grein fyrir því að hann hefði í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar undirritað reglugerð um veiðar á loðnu. Eftir mælingar á loðnustofninum í síðustu viku veitti Hafrannsóknastofnun ráðgjöf um veiðar á allt að 61.000 tonnum af loðnu á vertíðinni 2020/2021.  Er það aukning um 39.200 frá fyrri ráðgjöf.

Þá gerði ráðherra einnig grein fyrir því að rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson, fór af stað til mælinga síðastliðinn sunnudag. Í dag fara þrjú skip frá útgerðum loðnuskipa til loðnuleitar og því munu samtals fjögur skip sinna mælingunum næstu daga.  Auk þess eru tvö loðnuskip til viðbótar tilbúin að koma að verkefninu ef þörf verður á.

Veðurspá næstu daga auk spár um dreifingu hafíss úti fyrir Vestfjörðum gefur vonir um að það takist að fara yfir rannsóknasvæðið og að mæla stofninn að nýju á næstu dögum. Verður áhersla lögð á svæðið úti fyrir norðanverðum Austfjörðum, fyrir Norðurlandi og Vestfjörðum en ekki hefur tekist að kanna þau svæði síðustu vikur sökum óveðurs og hafíss úti fyrir Vestfjörðum.

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Það er mjög ánægjulegt að tekist hafi að afstýra að loðnubrestur myndi raungerast þriðja árið í röð. Þetta er vissulega ekki mikið magn en sú staðreynd að íslensk skip munu nú halda til veiða á loðnu er skref í rétta átt. Leitin heldur áfram af fullum þunga og í dag bætast þrjú skip við í þá leit. Það er enda mikið í húfi fyrir viðspyrnu efnahagslífsins að loðnuvertíðin verði eins öflug og kostur er.“

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida 5 Tbl EF
5. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.