Góðar fréttir voru að berast úr herbúðum ÍBV rétt í þessu en þau Kristrún �?sk Hlynsdóttir og Andri Heimir Friðriksson skrifuðu í dag undir nýjan tveggja ára samning við ÍBV. Samningurinn var undirritaður í húsnæði Eyjablikks, en Eyjablikk hefur verið dyggur stuðningsaðili handknattleiksdeildarinnar.
Andri Heimir hefur verið einn lykilmanna liðsins og skoraði 87 mörk í vetur en hann er uppalinn hjá ÍR. Andri Heimir varð Íslands- og bikarmeistari með ÍBV. Kristrún �?sk er uppalinn hjá ÍBV, hún hefur leyst stöðu vinstri hornamanns hjá félaginu og hefur vaxið gríðarlega í stöðunni en hún fékk verðlaun fyrir mestu framfarir í meistaraflokki á lokahófi ÍBV.