Sundkappinn Jón Kristinn �?órsson náði landi á Landeyjasandi á sjöunda tímanum í morgun en hann hóf sundið frá Eiðinu í Vestmannaeyjum klukkan ellefu í gærkvöldi. Sundið tók sjö og hálfan tíma en stefnt hafði verið á að ná til Landeyjahafnar á fjórum tímum. Straumar reyndust óhagstæðir en vegalengdin er um 15 kílómetrar í stað 11. Frá þessu er greint á
visir.is en eyjafrettir.is fylgdust með Jóni Kristni frá því hann hóf sundið og þar til hann náði landi.
Í samtali við visir.is í morgun segir Jón Kristinn: �??�?etta gekk brösulega en ég kláraði þetta. �?etta var erfiðara en ég bjóst við,�?? segir Jón Kristinn. Straumarnir hafi verið miklu meiri en hann hafi órað fyrir. Jón hafði rætt við menn sem hafa synt þessa leið og eftir þau samtöl reiknaði hann með fjórum tímum í sjónum. Hann velti fyrir sér að hætta við.
�??�?að hvarflaði að mér strax í byrjun þegar ég sá hve úfinn sjórinn var og straumarnir miklir. �?g ákvað samt að halda smá áfram og þetta batnaði aðeins,�?? segir Jón Kristinn sem starfar sem lögreglumaður og greinilega í góðu formi.
Ermasundið næst á dagskrá
Sjórinn var í kringum ellefu gráður að hans sögn en hann segist varla muna eftir augnablikinu þegar hann loks kom í land.
�??�?g man að ég kom í land en skildi strákana ekki alveg þegar þeir voru að tala við mig. Mér fannst þeir vera að tala útlensku við mig. Svo eftir heita sturtu kom þetta til baka.�??