Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Kristófer Ísak Bárðarson skoraði átta mörk fyrir ÍBV í kvöld. Ljósmynd/Sigfús G. Guðmundsson.

Karlalið ÍBV tók á móti Val í lokaumferð Olís deildar karla í Eyjum í kvöld. Leiknum lauk með sex marka sigri Vals.

Jafnræði var með liðum í upphafi leiks og skiptust liðin á að vera með forystuna. Valsmenn voru yfir með einu marki, 8-9, eftir stundarfjórðung. Valsmenn náðu tveggja marka forystu, 12-14, þegar sex mínútur voru eftir af fyrri hálfleik. ÍBV komst yfir þegar skammt var eftir en Valsmenn jöfnuðu og var staðan jöfn, 16-16, í hálfleik. 

Seinni hálfleikur var jafn framan af eða þangað til Valsmenn tóku að skríða fram úr ÍBV og voru komnir með fjögurra marka forystu, 22-26,  þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum. Valsmenn komust fimm mörkum yfir þegar sjö mínútur voru til leiksloka. Valur kláraði leikinn svo nokkuð örugglega og unnu sex marka sigur. Lokatölur leiksins 28-34. 

Kristófer Ísak Bárðarson var markahæstur í liði ÍBV með átta mörk. Arnór Snær Óskarsson var markahæstur í leiknum með 11 mörk. Morgan Goði Garner varði sjö skot í marki Eyjamanna. 

Mörk ÍBV: Kristófer Ísak Bárðarson 8 mörk, Sveinn José Rivera 5, Elís Þór Aðalsteinsson 4, Daníel Þór Ingason 3, Nökkvi Snær Óðinsson 3, Antons Frans Sigurðsson 2, Ívar Bessi Viðarsson 2, Heimir Halldór Sigurjónsson 1. 

Eyjamenn voru án fjölda leikmanna í kvöld en Andri Erlingsson, Petar Jokanovic, Dagur Arnarsson og Haukur Leó Magnússon voru frá vegna meiðsla. Ísak Rafnsson og Sigtryggur Daði Rúnarsson hafa ekki verið leikfærir í einhvern tíma. Hákon Daði Styrmisson var heldur ekki með ÍBV í kvöld.

ÍBV mætir KA í 8-liða úrslitum

Með sigrinum tryggðu Valsmenn sér deildarmeistartitilinn 2026 og heimaleikjarétt í úrslitakeppninni. Eyjamenn enda í fjórða sæti deildarinnar og fá heimaleik gegn KA í 8-liða úrslitum. 

ÍR féll úr Olís deildinni í kvöld eftir tap gegn FH og þá fer Stjarnan í umspil um hvort liðið leiki í Olís deildinni að ári eða ekki. Nýliðarnir, Selfoss og Þór eru bæði komin í sumarfrí. 

Úrslitakeppnin hefst 25. mars og hægt er að sjá dagskrána í 8-liða úrslitum hér að neðan:

Valur – HK

FH – Fram

Haukar – Afturelding

ÍBV – KA

 

 

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.