Vegna óviðráðanlegra orsaka hjá hljómsveitinni Dúndurfréttum, hefur verið ákveðið að fresta Led Zeppelin tónleikunum sem fyrirhugaðir voru í kvöld. Sveitin setti sig í samband við forráðamenn Hallarinnar í morgun og tilkynntu frestunina. Það verður hins vegar nóg um að vera í Höllinni annað kvöld, Eyjatónleikar og matarveisla Einsa Kalda, Úrval úr matarkistu Eyjanna.