Leik ÍBV og Fjölnis, sem átti að fara fram í dag klukkan 18:30, hefur verið frestað til morguns þar sem ekki er flugfært til Reykjavíkur. Reyna á aftur á morgun og ef allt gengur eftir munu liðin mætast í Íþróttamiðstöðinni í Vestmannaeyjum klukkan 14:00 á morgun, laugardag.