„Lífið er meira en sjómennska“
24. apríl, 2024
Ríkharður Zoëga Stefánsson á sjámannadeginum. Hann hefur átt sæti í sjómannadagsráði í ein 20 ár. Eyjar.net/Tryggvi Már

Í nýútkominni samfélagsskýrslu Síldarvinnslunnar eru stutt viðtöl við nokkra starfsmenn fyrirtækisins og dótturfélaga. Í dag var birt viðtal við Ríkharð Zoёga Stefánsson kokk á Bergi VE á vef Síldarvinnslunnar.

Ríkharður Zoëga Stefánsson er Reykvíkingur sem kom fyrst til Vestmannaeyja 14 ára gamall. Þá bjó hann hjá systur sinni í Eyjum. Hann fór aftur til Reykjavíkur til að klára skóla en síðan var hið snarasta haldið til Eyja á ný og Ríkharður hefur búið í Vestmannaeyjum frá árinu 1975. Í fyrstu starfaði hann hjá Ísfélaginu en árið 1977 fór hann á sjó í fyrsta sinn á gömlu Vestmannaey. Síðan gerðist Ríkharður verkstjóri hjá Ísfélaginu og sinnti því starfi í tvö ár. Sjórinn togaði og árið 1979 fór hann á Klakkinn og þaðan á ný á Vestmannaey.

Þegar Bergur – Huginn, félag Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns, festi kaup á Bergey fluttist hann yfir á hana og var þar í ein 10 ár. Þá fór hann á flakk á milli skipa næstu árin. Ríkharður réðst á Smáey árið 1997 og síðan hefur hann verið hjá Bergi – Hugin og hefur hugsað sér að klára sjómannsferilinn hjá því félagi. Þegar Ríkharður er spurður hvernig honum líki á sjónum stendur ekki á svari.

Fiskur fjórum sinnum í viku

„Ég er búinn að vera 45 ár á sjó hjá sama fyrirtækinu og það segir bara það að mér líkar vel. Nú er ég kokkur á Bergi og hann er gerður út af Bergi ehf en í reynd er um að ræða sömu útgerðina. Ég nýt mín vel í því starfinu mínu. Ég er örugglega frekar íhaldssamur kokkur og býð upp á hefðbundinn íslenskan mat. Það er til dæmis fiskur fjórum sinnum í viku. Bergur er flott skip. Það var smíðað árið 2019 og er 29 metra langt. Svona skip eru gjarnan nefnd „þriggja mílna bátar.“ Öll vinnuaðstaða á Bergi er til fyrirmyndar og frábært að vinna í eldhúsinu um borð.“

Allar áhyggjur reyndust óþarfar

Þegar Ríkharður er spurður um hvaða breytingar hafi átt sér stað þegar Síldarvinnslan festi kaup á Bergi – Hugin árið 2012 stendur ekki á svari.

„Það breyttist ýmislegt og allt sem gerðist var jákvætt. Það var afskaplega gott að vera hjá Magnúsi Kristinssyni en þegar Síldarvinnslan festi kaup á félaginu var til staðar meiri kvóti og laun okkar sjómannanna hækkuðu um 30% eða svo. Ég man að við vorum í aðgerð úti á sjó þegar við fengum fréttirnar um að Síldarvinnslan væri bún að festa kaup á útgerðinni og margir í áhöfninni urðu mjög áhyggjufullir. Tveir eða þrír í áhöfninni hættu í kjölfar fréttanna og leist ekkert á. En allar áhyggjur reyndust óþarfar og það hefur allt gengið afskaplega vel eftir að Síldarvinnslan kom til sögunnar. Það er gott að vinna hjá þessu fyrirtæki og mér líður einstaklega vel í starfi. Nú er ég 65 ára og á því ekki mörg ár eftir á sjónum. Einhvern tímann kemur að því að maður þarf að hægja á sér. Það er líka full ástæða til að minnast á það að lífið er meira en sjómennska. Ég hef reynt að láta gott af mér leiða og til dæmis tekið þátt í félagsstörfum sjómanna. Ég hef verið varaformaður Sjómannafélagsins Jötuns og mér hlotnaðist sá heiður að skrifa undir kjarasamninga sjómanna nú í febrúar. Ég er sannfærður um að það eru góðir samningar. Ég hef einnig átt sæti í sjómannadagsráði hér í Eyjum í ein 20 ár og ég held að enginn annar hafi átt sæti jafn lengi í ráðinu. Það er svo skemmtilegt að vinna við hátíðarhöld sjómannadagsins að ég tími ekki að hætta. Fyrir utan þetta er ég í Kiwanis og er einnig virkur tómstundamálari. Lífið býður upp á svo margt fyrir utan vinnuna.“
Ríkharður Zoëga á Skansinum í Eyjum. Eyjar.net/Óskar Pétur
Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
6. tbl. 2025
6. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.