Það er að færast fjör í leikinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí nk. Fjórtán frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðismanna sem verða á föstudaginn kynntu sig á fjölmennum fundi í Ásgarði á laugardaginn. Áreiðanlegar heimildir herma að listi Eyjalistans sé nánast klár og verði kynntur á næstunni. Að honum standa Framsókn, Samfylking og Vinstri græn. Á meðan hefur lítið heyrst frá Miðflokknum eftir að hafa kynnt nokkrar konur og karla sem eru tilbúinn í slaginn í vor.
Kaffistofur bæjarins eiga það sameiginlegt að þar er ekki töluð vitleysan og mættu eyjafréttir.is í seinni bylgjuna í N1 við Friðarhöfn í morgun til að taka púlsinn á mönnum. Fyrri bylgjan er klukkan 9.30 en sú seinni kl. 10.30 og þar mæta menn með skoðanir.
Því fékk Jarl Sigurgeirsson, sem býður sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins að kynnast. Hann fékk nokkrar spurningar sem hann svaraði af kurteisi en líka var rætt um gagn og nauðsynjar dagsins. Allt á þægilegu nótunum þó ekki séu menn alltaf sammála.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.