Litið verði á Herjólf sem þjóðveg og þjónustan miðuð við það
Fyrir bæjarráði í síðustu viku lágu fyrir drög að verksamningi milli Háskólans á Akureyri og Vestmannaeyjabæjar um þjónustugreiningu fyrir Vestmannaeyjabæ og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið er varðar notkun á Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi meðal mismunandi hagsmunaaðila í samfélaginu í Vestmannaeyjum. Einnig lá fyrir erindi frá Elís Jónssyni þar sem fram kemur m.a. að óskað er eftir afstöðu bæjarstjórnar til þess að Vestmannaeyjabær hafi frumkvæði að sjá um að framkvæma íbúakosningu um rekstur á nýrri Herjólfsferju.
Fram kom að bæjarráð hefur yfirfarið drög að verksamningi við Háskólann á Akureyri og lýsir ánægju sinni með hann. Sérstaklega fagnar bæjarráð þeim áherslubreytingum sem nú eru vonandi að verða og felst í því að líta eigi á Herjólf sem þjóðveg og miða þjónustu hans við það. �?annig taki til að mynda ákvörðun um fjölda ferða á hverjum tíma mið af raunþörfum samfélagsins en ekki eingöngu hámarksnýtingu á hverri ferð.
�?á fagnar bæjarráð því einnig að nú skuli sérstök áhersla verða lögð á að þjónusta Herjólfs taki mið af því að bæta samkeppnisstöðu Vestmannaeyja. �??Bæjarráð hefur í áratugi unnið að því að nálgast ofangreind markmið og mörg önnur sem fjallað er um í viljayfirlýsingu Vestmannaeyjabæjar og samgönguráðuneytisins. Athygli vekur að árangur þessarar vinnu skuli fyrst verða ljós þegar til þess er komið að Vestmannaeyjabær taki að sér rekstur Herjólfs. Meðal annars með það í huga felur bæjarráð bæjarstjóra að vinna áfram að málinu í samstarfi við þá aðila sem til þess voru valdir af ráðinu,�?? segir í fundargerð.
Bæjarráð þakkaði Elís fyrir erindið og tekur undir margt af því sem þar kemur fram. Bent er á að bæjarstjórn hefur á öllum tímum nálgast samgöngumál af einhug og látið sér annt um að sátt sé um þau. Til marks um það þá hafa langflestir liðir sem þeim tengjast verið samþykktir samhljóða a.m.k. frá árinu 2006 óháð fólki og flokkum. Tilgangur með störfum í bæjarstjórn sé enda að sameina fólk um mikilvæg mál frekar en að sundra.
�??Til að fyrirbyggja misskilning vill bæjarráð benda bréfritara á að samkvæmt viljayfirlýsingu sem kynnt hefur verið er eingöngu unnið út frá því að Vestmannaeyjabær reki Herjólf í 2,5 ár og að skýrt sé að framlög ríkisins standi undir kostnaði við reksturinn. Áhættan er því afar takmörkuð ef samningur verður yfirhöfuð gerður.
�?á bendir bæjarráð á að enn er allt tal um atkvæðagreiðslu um samning ótímabær enda liggur ekki fyrir svo mikið sem drög að slíkum samningi. Enn hefur ekki svo mikið sem verið haldinn fundur um málið með Vegagerð og/eða samgönguráðuneyti eftir að viljayfirlýsing var undirrituð. �?að liggur því í hlutarins eðli að ekki er hægt að boða til kosningar um mál sem enn er algerlega óvíst að komi nokkurri sinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Í erindi bréfritara er óskað eftir afstöðu til þess að Vestmannaeyjabær hafi frumkvæði að því að fram fari íbúakosning um málið og vill bæjarráð taka skýrt fram að ráðið er ætíð opið fyrir samstarfi, samvinnu og upplýstri umræðu um allt sem tengist hagsmunum Vestmannaeyjabæjar. Með það í huga samþykkir bæjarráð að haldinn verði almennur og opinn fundur um stöðu málsins þar sem stýrihópnum sem farið hefur fyrir málinu ásamt þeim fagmönnum sem til verksins hafa valist, kynna stöðu þess, framvindu og væntingar. �?ar verði sérstök áhersla lögð á að hlutlausir aðilar upplýsi um mögulega áhættu og ávinning ef til þess kemur að Vestmannaeyjabær taki að sér rekstur Herjólfs, segir í svari bæjarráðs við erindinu.

Nýjustu fréttir

Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga lét til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.