Á laugardaginn kemur fara fram í Höllinni tónleikarnir „Ljós í leikhúsið“ en um er að ræða styrktartónleika þar sem safnað er fyrir nýjum ljósabúnaði fyrir Leikfélag Vestmannaeyja. „Við tökum brot úr 11 söngleikjum þar af 2 atriði af tónleikunum í fyrra sem þóttu of góð til að sleppa þeim“ sagði Birkir Thor Högnason, einn af skipuleggjendum tónleikana.