Lóðsinn í Vestmannaeyjum er væntanlegur í höfn í Vestmannaeyjum um klukkan fjögur í dag með skipið Wilson Harrier í togi. Sveinn Rúnar Valgeirsson skipstjóri á lóðsinum sagði að það væri alvarleg vélarbílun í Wilson Harrier sem er mjölbátur. �??Skipið er um 100 metrar og liggjum við sunnan við Eyjuna núna og siglum svo vestur meðfram Álsey, það er leiðindar veður þannig við verðum í höfn um klukkan fjögur í dag,�?? sagði Sveinn.