Lögregla hvetur ökumenn til að fara varlega
Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og má þar helst telja nokkur slys sem urðu í umdæminu. Frekar rólegt var í kringum veitingastaði bæjarins um helgina og engin teljandi vandræði sem fylgdi skemmtanahaldinu.
Einn ökumaður var stöðvaður af lögreglu vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, auk þess sem hann ók sviptur ökuréttindum.
Ein eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í liðinni viku en um var að ræða rúðubrot í �?órsheimilinu. Um er að ræða tvær rúður sem voru brotnar og er talið að rúðurnar hafi verið brotnar, annaðhvort að kvöldi 18. ágúst eða aðfaranótt 19. ágúst sl. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki en þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um það hverjir þarna voru á ferð, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu.
Í vikunni var lögreglunni tilkynnt um vinnuslys í Vinnslustöðinni en þarna hafði verktaki sem var að vinna við viðgerð á þaki dottið niður. Er talið að fallið hafi verið á bilinu 4-6 metrar. Maðurinn slasaðist á mjöðm og var fluttur með sjúkraflugi á sjúkrahús í Reykjavík.
�?á var lögreglu tilkynnt um mann sem féll af þaki einbýlishúss en hann hafði verið að vinna við þak hússins. Maðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnunina í Vestmannaeyjum en hann kvartaði yfir eymslum í baki og höfði.
Í byrjun vikunnar var lögreglan kölluð að smábátahöfninni vegna áreksturs tveggja erlendra skútna en einhverjar skemmdir urðu á skútunum við áreksturinn. Hins vegar urðu engin slys á fólki við áreksturinn.
Í vikunni var lögreglan kölluð til vegna slyss við akstur svokallaðs �??Segwey-hjóls�?? en þarna hafði kona dottið af hjólinu og kvartaði yfir eymslum í baki. Hún var flutt á Heilbrigðisstofnunina í Vestmannaeyjum til aðhlynningar. Ekki var um alvarleg meiðsl að ræða.
Lögreglan vill minna ökumenn á að núna þegar skólar eru byrjaðir þá fjölgar gangandi vegfarendum í umferðinni og þá sérstaklega börnum sem eru á leið til og frá skóla. Eru ökumenn því hvattir til að fara varlega, sérstaklega í kringum skólana. �?kumenn eru jafnframt hvattir til að virða gangbrautaréttinn.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.