Lykil að lausninni er að finna í Vestmannaeyjum
Öflugur hópur kennara GRV sem hafa lagt sitt af mörkum til að Neistinn náði fluginu. Mynd Óskar Pétur.

Menntakerfi í basli – Hrakleg útkoma í Pisakönnunum – Verri líðan

Er íslenska skólakerfið komið að fótum fram? Þannig er umræðan á Íslandi í ágúst 2025 þegar skólabjallan glymur í eyrum tuga þúsunda nemenda á öllum skólastigum. Flestir eru sammála um að margt þurfi að bæta en svo rennur umræðan sitt skeið. Allt í blóma þangað til næsta Pisakönnun læðist að okkur eins og djúp lægð sunnan úr höfum. Jú, ekki gott að skrapa botninn í alþjóðlegum samanburði en er ekki eitthvað skrýtið við þessa Pisa könnun?

Þannig byrjar formáli Ómars Garðarssonar, ritstjóra að ýtarlegri umfjöllun um skólamál í Vestmannaeyjum í blaði Eyjafrétta sem kemur út á fimmtudaginn. Þar er þróunarverkefnið Kveikjum neistann þungamiðjan. Verkefni sem hófst árið 2021 í Grunnskóla Vestmannaeyja og verða nemendur sem þá hófu nám í fimmta bekk í vetur.

Ótrúlega flottir krakkar

Niðurstaða yfirferðar Eyjafrétta er að í Kveikjum neistann er að finna lausn á öllum þeim vandamálum sem menntakerfið íslenska stendur frammi fyrir í dag. Skilar krökkum, jafnt stelpum og strákum sem kunna að lesa. Lesskilningur yfir 90 prósent og geri aðrir betur.

„Ég er mjög stolt af þessum árgangi sem er einstakur og skemmtilegt að fylgjast með þeim. Það merkja líka margir sem hafa kynnst þeim, finna gróskuhugarfarið sem er svo einkennandi. Hafa meiri trú á sér, seiglu og vilja til að gera vel. Hingað hefur komið fólk og unnið með þeim í öðrum verkefnum og segja þau einstök. Það er gaman að heyra. Eru tilbúin í allt, ánægð í skólanum og eiga fleiri vini. Ótrúlega flottir krakkar,“ segir Anna Rós Hallgrímsdóttir annar skólastjóri GRV. Hún og Einar Gunnarsson hinn skólastjóri GRV eru í mjög ítarlegu viðtali blaðinu ásamt mörgum öðrum.

Hér má gerast áskrifandi að Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar landa í Eyjum í dag
Útför: Þórunn Pálsdóttir
Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.