Magnús Kjartan ekki með brekkusönginn í ár
Magnús Kjartan mun stíga til hliðar í brekkusöngnum á Þjóðhátíð í ár.

Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartan Eyjólfsson mun ekki stýra brekkusöngnum í Herjólfsdal á Þjóðhátíð í ár. Magnús hefur stýrt brekkusöngnum síðan 2021 en segir nú tímabært að stíga til hliðar eftir að hafa ekki fundið sömu ástríðu fyrir verkefninu og áður.

Magnús greinir frá ákvörð sinni í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann lítur yfir farinn veg á tímamótum í lífi sínu. Þar segir hann mikilvægt að staldra við, meta stöðuna og velta fyrir sér hvar áhuginn og krafturinn liggi.

Hann segir tónlistina lengi hafa verið sína helstu ástríðu og að hann hafi náð langt á þeim vettvangi, meðal annars með hljómsveitinni Stuðlabandinu og sem trúbador um land allt.

Magnús þakkar Eyjamönnum, þjóðhátíðargestum og öllum sem hafa fylgt honum í gegnum árin fyrir stuðninginn. Einnig nefnir hann fjölskyldu sína og félaga í Stuðlabandinu, og sérstaklega eiginkonu sína, fyrir ómetanlegan stuðning.

Þrátt fyrir að stíga til hliðar frá brekkusöngnum tekur Magnús fram að hann sé hvergi nærri hættur í tónlist.

Nýjustu fréttir

Kæru Eyjamenn, kæru sjálfstæðismenn
Drangavík VE dregin til hafnar eftir að veiðarfæri fóru í skrúfu
Magnús Kjartan ekki með brekkusönginn í ár
Nálægð, traust og sterk liðsheild skilar öllum árangri!
Kona á öld hrottans – Saga úr Vestmannaeyjum
ÍBV tapaði á Akureyri
Í dag eru 84 íbúðir í byggingu
ÍBV sækir KA heim í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.