Þær Birna Vídó Þórsdóttir og Sigríður Lára Andrésdóttir opnuðu nýja og glæsilega snyrtistofu í dag. Stofan heitir Mandala, en nafnið er heitið á indversku tákni og þýðir að öll byrjum við á einum punkt en svo er það undir okkur að halda áfram vegferðinni.
Birna og Sigga Lára eru ekki nýgræðingar í faginu en báðar hafa þær starfað við fagið í mörg ár. Á Mandala verður unnið með franska merkið Guinot ásamt því að vörur frá merkinu verða til sölu. Einnig munu þær selja snyrtivörumerkið Gosh, ilmvötn og naglalökk. „Við munum svo auka vöruúrvalið síðar,“ sagði Sigga Lára.
Aðspurðar, voru þær afar ánægðar með afraksturinn og hlakka til að taka á móti gömlum sem nýjum kúnnum á nýjum stað.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst