Í gær rann út framboðsfrestur í Röðun Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum og í gær sendi ég neðangreinda tilkynningu til kjörnefndar.
“Á því kjörtímabili sem nú er að renna sitt skeið, hef ég verið formaður Umhverfis�?? og skipulagsráðs og varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Verkefnin hafa verið mörg, allflest bæði skemmtileg og krefjandi. �?tal ákvarðanir hafa verið teknar, enda dylst fáum hversu miklar framkvæmdir hafa verið hér í bæ síðastliðin ár á sviði skipulags- og byggingarmála. �?g hef lagt mig fram við að hlusta á íbúa, kynna mér málin vel og taka upplýstar ákvarðanir. Heilt yfir er ég ánægð með verkin og ég hef fundið fyrir miklum velvilja og stuðningi, bæði innan Sjálfstæðisflokksins sem og utan. �?að traust sem mér hefur verið sýnt, við ákvarðanatöku í ótrúlega stórum málum s.l. fjögur ár er mér mikils virði.
Í ljósi þeirrar hvatningar sem ég hef fengið, lýsi ég því hér með yfir að ég hef áhuga, getu og vilja til þess að taka þátt í þeim fjölmörgu spennandi verkefnum sem framundan eru hjá sveitarfélaginu. �?g hef því tekið ákvörðun um að bjóða krafta mína fram í 4.-5. sæti í röðuninni hjá Sjálfstæðisflokknum næstkomandi laugardag.
�?g hef mikla trú á að Sjálfstæðisflokkurinn muni bjóða fram öflugan framboðslista í vor. Framboðslista sem er samheldinn, því liðsheild skilar árangri. Lista sem veit að árangur og velgengni byggist ekki á einum manni eða á þröngum hópi, heldur með samstíga sókn góðs hóps.”
Margrét Rós Ingólfsdóttir