Margrét Rós Ingólfsdóttir: Af vettvangi skipulagsmála
Af vettvangi skipulagsmála
Eyjamenn eru almennt bjartsýnir á framtíð sína og Eyjanna. �?að dylst engum sem fer um bæinn okkar að framkvæmdir eru miklar og einstaklingar og fyrirtæki eru stórhuga í framkvæmdum. Staðreyndin er sú að á árunum 2004-2016 hafa verið byggðir hér í Eyjum 15.820,3 m2 samkvæmt samþykktum Umhverfis �??og skipulagsráðs. Er þá um að ræða nýbyggingar, viðbyggingar og endurbyggingar eldri húsa. �?að er sennilega íslandsmet sé mið tekið af því að sveitarfélagið er ekki nema um 13 km2.
Nýtt aðalskipulag til næstu 20 ára
Á fundi Umhverfis �??og skipulagsráðs í byrjun desember verður lögð fram tillaga að nýju aðalskipulagi Vestmannaeyja. Verður tillagan í framhaldi auglýst og allir sem vilja geta kynnt sér efni hennar og hafa tilskilinn frest til þess að skila inn athugasemdum. Í tillögunni koma m.a. fram tillögur um stórskipahöfn, byggð í Löngulág, að grafa út hraunið, nýtt athafnasvæði og ótal margt fleira. �?að er von mín að sem flestir muni kynna sér efni tillögunnar og koma með ábendingar eða athugasemdir.
Kærkomin upplyfting
Eitt af þeim málum sem hafa verið áberandi í umræðunni undanfarið, t.d á samfélagsmiðlum, er fyrirhuguð uppbygging á lóð á Skólavegi 7, en sótt hefur verið um niðurrif hússins sem þar stendur og í staðinn að byggja 3 íbúða hús með bílastæði fyrir hverja íbúð í kjallara.
�?að hús sem stendur nú á lóðinni á sér um margt merkilega sögu. �?að var byggt árið 1922 og er af mörgum kallað Ásnes í daglegu tali. Í hugum margra fylgja húsinu hlýlegar minningar. Fyrir utan þá sem þar hafa búið eða dvalið, þá voru margir reglulegir gestir í blómabúðinni hjá Imbu. �?að er því bæði sjálfsagt og eðlilegt að horfa á eftir húsinu, eins og það eitt sinn var, með trega. En að sama skapi er gott að gleðjast yfir því að þessi fallega lóð í hjarta bæjarins verði nýtt betur en nú er. Sjálf er ég sannfærð um að svo muni verða.
Nýtt gistiheimili í Vesturbænum
Allmargir sjá á einnig eftir því að hafa ekki verslun í vesturbænum en það er víst svo að allt er breytingum háð. Hlutverk okkar í skipulagsmálum er meðal annars að mæta þörfum samtímans og tryggja að þær falli að skipulagi almennt. Í því húsnæði sem eitt sinn hýsti Kaupfélagið í Goðahrauni og síðar m.a. 11-11 og Kjarval hafa einstaklingar fest kaup á og fengið leyfi til að útbúa þar gistiheimili. �?að er fagnaðarefni að slíkir eldhugar skuli ráðast í þær aðgerðir og finna ný not fyrir húsnæði sem í nokkurn tíma hefur staðið autt og var farið að láta verulega á sjá og svæðinu ekki til framdráttar. Nú þegar er búið að saga út fyrir gluggum og lítur húsið strax skemmtilegra út fyrir vikið. Tækifærin fyrir gististað í vesturbænum eru mikil, t.d er nálægð við golfvöllinn og íþróttavelli mikil auk þess sem útsýni, t.d yfir smáeyjarnar og í Herjólfsdal er óviðjafnanlegt.
Stórhuga verkefni HS-veita
�?að hefur vart farið framhjá nokkrum að framkvæmdir við nýja Varmadælustöð við Hlíðarveg eru í fullum gangi. �?ar er áætlað er að dæla um 2.000 tonnum af sjó á klukkustund þegar varmadælurnar verða komnar
í gagnið. Í hundruði ára höfum við Eyjamenn nýtt sjóinn okkur til framdráttar, en aldrei fyrr með þessum hætti. �?egar varmadælustöðin verður komin í gagnið verður sjórinn umhverfis Vestmannaeyjar nýttur til að vinna úr honum varma til að hita húsnæði og ætti slíkt að leiða til sparnaðar fyrir einstaklinga og fyrirtæki, að ótöldu hversu umhverfisvænna þetta er. Áætlað er að varmadælustöðin verði klár um mitt næsta ár gangi allt að óskum.
�?ryggi gangandi
Sl. ár hefur verið unnið mikið og gott starf í endurnýjun gangstétta víðsvegar um Vestmannaeyjar og telja nýjar og endurgerðar gangstéttir tugum kílómetra. Njótum við Eyjamenn þar fyrst og fremst góðs af Agga og hans öfluga gengi. �?essa dagana er verið að hefjast handa við að endurnýja gangstéttir og kanta á Boðaslóð og áfram verður svo haldið, svæði við Hlíðarveg og við Hraunbúðir eru þar framarlega í röðinni. �?á verður farið í að endurgera hraðahindranir á Vesturvegi, Vestmannabraut og á Hraunhamri, en þær verða hellulagðar. Endurnýjun gangstétta og kanta er ekki einungis fagurfræðileg, heldur er ekki síður um að ræða mikið öryggisatriði fyrir gangandi vegfarendur. �?að má því ekki slá slöku við hvað það varðar og áfram verður haldið.
Tækifæri út um allt!
Í Eyjum höfum við byggt okkur byggðarkjarna sem við getum verið stolt af. Ekki eingöngu erum við nokkuð margir íbúar á mælikvarða íslenskra landsbyggða heldur er atvinnulíf hér í senn öflugt og blómlegt og þjónusta góð. Allt þarf þetta að þrífast innan náttúru og umhverfis sem á sér vart líka í veröldinni allri.
�?etta skapar okkur margvísleg og vandasöm verkefni og gerir störf Umhverfis �??og skipulagsráðs í senn krefjandi og ábyrgðarmikil, en ekki síður spennandi og skemmtileg. Við höfum ótrúlega mörg tækifæri til þess að halda áfram að gera vel, nýta tækifærin sem eru allt í kringum okkur og treysta fyrirtækjum og einstaklingum áfram til góðra verka.
Margrét Rós Ingólfsdóttir
Formaður Umhverfis �??og skipulagsráðs Vestmannaeyja

Nýjustu fréttir

Tengdadæturnar  Sigurlaug, Emma og Inga lét til sín taka
Frábær skráning á sundnámskeið á vegum Vestmannaeyjabæjar
Framleging á flugi samþykkt fram í miðjan apríl
Aleksandar Linta nýr þjálfari Eyjamanna 
Ágúst Gísli kom, sá og sigraði
Fótboltaskóli ÍBV og Heildverslun Karls Kristmanns
Gestum boðið upp á kaffi og köku í sundlauginni
Landað fyrir páskastopp

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.