Afturelding lagði ÍBV í framlengdum leik 27-25 eftir að ÍBV var með sigurinn í hendi sér.
ÍBV skoraði fyrsta mark leiksins en svo kom góður kafli Aftureldingar og þeir komust í 7:1 og virtist eiga auðveldan sigur vísan en Eyjamenn voru ekki sammála. �?eir gengu jafnt og þétt á forskot heimamanna og í hálfleik var staðan 11-8. ÍBV hélt áfram að ganga á Mosfellinga og náðu nokkrum sinnum að minnka muninn í eitt mark, þeir náðu svo loksins að jafna, 17-17 á 49. mínútu þegar Agnar Smári Jónsson skoraði. Afturelding náði þá aftur tveggja marka forystu en þá kom frábær kafli ÍBV og þeir skoruðu næstu fimm mörk og staðan orðin 20-22.
Jóhann Gunnar EInarsson í liði Aftureldingar náði þá að skora og staðan orðin 21-22, ÍBV fékk boltann og Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV tók leikhlé þegar aðeins 23 sekúndur voru eftir. Leikurinn hófst á ný og Agnar Smári rauk af stað, sendi á Andra Heimi sem skaut þegar 17. sekúndur voru eftir en Davíð Svansson, markmaður Aftureldingar varði. Strákarnir fóru illa af ráði sínu en þeir voru með leikinn í hendi sér, dómarinn hafði ekki gefið merki um leikleysu og því lá ekkert á.
Gunnar Malmquist �?órsson jafnaði metin í 22-22 og leikurinn því framlengdur. Afturelding öll völd í framlengingunni og skoraði þrjú fyrstu mörkin, sem var of mikið fyrir ÍBV. Lokatölur 27-25.
Liðin mætast aftur á föstudaginn klukkan 18:00 í Vestmannaeyjum, þá þýðir ekkert annað en sigur fyrir strákanna ætli þeir að halda sér inni í úrslitakeppninni. Með sigri getur Afturelding tryggt sér sæti í undanúrslitum.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Agnar Smári Jónsson 6, Theodór Sigurbjörnsson 5, Andri Heimir Friðriksson 5, Grétar �?ór Eyþórsson 4, Guðni Ingvarsson 2, Bergvin Haraldsson 2 og Hákon Daði Styrmisson 1.
Kolbeinn Arnarsson varði 22 skot.