Nú hefur svokallað hafnartorg verið sett inn á nýtt deiliskipulag og samhliða því verður geymslusvæði smábáta flutt inn í slipp. Hugmyndin um hafnartorgið kom upp á íbúaþingi árið 2006 og nú er komið til móts við íbúana með því að koma henni á skipulag og síðan í framkvæmd. Torgið tengir hafnarsvæði og miðbæ og á skipulagi er gert ráð fyrir göngustígum frá Herjólfsbryggju að torginu.