Mér er illt í ÍBV hjartanu
Trausti Hjaltason, sem eitt sinn var framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV, ritar áhugaverðan pistil á facebooksíðu sína. Hann skrifar:
�??�?ar sem að mér er afskaplega illt í ÍBV hjartanu þessa dagana þá langar mig að deila með ykkur góðum ÍBV momentum sem ég rifja reglulega upp til að ilja huganum.
Forsagan er sú að í mars 2010 þá er ég ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV og átti það starf eftir að vera mikil rússíbanareið. Næstu tvö sumur áttu eftir að verða hrikalega skemmtileg, viðburðarrík, dramatísk og spennandi.
Áhorfendamet á Kópavogsvelli.
Einn af eftirminnalegustu leikjunum tímabilið 2010 var útileikurinn gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli. Breiðablik og ÍBV voru bæði í toppbaráttu þetta tímabil og var leikurinn því í beinni útsendingu í sjónvarpinu.
Fyrir leik var mikið drama í búningsklefa ÍBV. Albert Sævarsson markvörður var búinn að vera eitthvað tæpur í hnénu frá byrjun tímabils. Rétt áður en dómarinn flautar liðinn útá völl, kemur Albert inní klefa og biður Gústa sjúkranuddara að hjálpa sér með hnéið.. hnéið hafði farið úr lið.. og var því hnéskelin útá hlið..menn fá auðvitað nett sjokk og það verður uppi fótur og fit.
�?g hleyp og næ í Abel Dhaira varamarkmann og segi að hann þurfi að spila, Jóhann Sveinn búningastjóri hleypur til dómarana og lætur þá vita að við verðum að breyta skýrslunni vegna þess að markmaðurinn okkar sé meiddur og geti ekki spilað.
Albert stendur upp af sjúkrabekknum, hristir löppina aðeins og segir ahh.. jæja ég er í lagi, ég spila! Við það skellur flautann, og drengirnir labba útá völl.. �?ar er öll gamla stúkan troðin af ÍBV stuðningsmönnum, Stalla-hú mætt og allt að verða vitlaust.
�?að er frábært veður og fólkið er enn að streyma á völlinn. Rúta með ÍBV stuðningsmönnum rennir í hlaðið beint úr Landeyjarhöfn og enn fleiri ÍBV stuðningsmenn mæta. 3180 áhorfendur mættu á þennan magnaða leik sem endaði 1-1 þar sem TG9 skoraði úr vítaspyrnu fyrir okkur og Alfreð Finnboga fyrir Breiðablik.
�?g man að maður sat hálf dolfallinn á bekknum og fylgdist með áhorfendum öskra sig hása fyrir klúbbinn�?� og Albert hann kláraði leikinn, ótrúlegur stálkall.. var valinn leikmaður ársins hjá bandalaginu eftir þetta tímabil.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.