Mun meiri umferð var um Landeyjahafnarveg yfir verslunarmannahelgina 2013 miðað vð árið 2012 eða sem nemur um 12 prósentum. Alls fóru 9.786 bílar yfir umferðarteljara sem staðsettur er á veginum við vegamót Hringvegar, frá fimmtudegi til og með þriðjudags. Ljóst er samkvæmt meðfylgjandi stöplariti að mesta umferðin er á sjálfum frídegi verslunarmanna.