�?að var fjölmennur íbúafundur í Höllinni í kvöld. Meðal annars var kosið um hvaða nafn ætti að vera á nýrri Vestmannaeyjaferju, en eins og þekkt er orðið er vinnuheitið Vilborg og var skipanefndin búin að samþykkja það. Nafnið sem hlaut hinsvegar flest atkvæði var nafnið Herjólfur. 159 greiddu atkvæði. Herjólfur fékk um 80% atkvæða og nafnið Vilborg fékk um 15% atvæða. Aðrar tillögur fengu mun færri atkvæði. Nú verðum við bara bíða og sjá hvað Sigurður Ingi Samgönguráðherra ákveður að gera, en nafnið er í hans höndum.
Kíktu á facebook síðu Eyjafrétta til að sjá tilkynninguna
hérna.