Nálægð, traust og sterk liðsheild skilar öllum árangri!
Kjartan Vídó Ólafsson

Aðsend grein

Kjartan Vídó Ólafsson

Ég hef ákveðið að bjóða mig fram í 3. – 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum sem fer fram þann 13. mars nk.

Vestmannaeyjar eru mitt heimili og vil ég leggja mitt af mörkum fyrir samfélagið okkar. Ég tel mikilvægt að í bæjarstjórn sitji fólk sem hefur sterka tengingu við bæjarbúa, þekkir áskoranir þeirra og hefur skýra sýn á framtíðina. Ég vil vinna að áframhaldandi uppbyggingu bæjarins, styrkja grunnþjónustur þess enn frekar, styðja við atvinnulífið og standa vörð um hag íbúa á öllum aldri.

Ég trúi því að góð og heiðarleg stjórnmál byggist á nálægð, trausti og sterkri liðsheild. Af þeim sökum er ég tilbúinn að vera sýnilegur, aðgengilegur og standa með íbúum og fyrirtækjum hér í Eyjum, bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs.

Áhugi minn snýr ekki að því að sækjast í pólitík fyrir pólitískar sakir. Ástæðan er einföld: mig langar að leggja mitt af mörkum, taka ábyrgð og vinna að því að gera gott samfélag enn betra. Ég vil nálgast verkefnin af heilindum, með opnum huga og í góðu samtali og samstarfi við bæjarbúa.

Ég vona að stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins í Eyjum veiti mér traust sitt í prófkjörinu 13. mars og ég hlakka til að eiga gott samtal við ykkur á næstu dögum.

Kjartan Vídó Ólafsson

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.