Stelpurnar í handboltaliði ÍBV byrjuðu tímabilið vel þegar þær tóku á móti Gróttu í íþróttamiðstöðinni í dag. Fresta varð leiknum um fimm klukkustundir þar sem Gróttuliðið komst ekki í tæka tíð til Eyja og fór leikurinn fram klukkan 17 í stað 12. Eyjastúlkur byrjuðu mun betur í leiknum en staðan í hálfleik var 15:15. Lokatölur urðu hins vegar 25:24 eftir æsispennandi lokasekúndur.