Glöggur vegfarandi kom við á ritstjórn Eyjafrétta.is nú síðdegist og vildi koma á framfæri ábendingu til Eyjamanna. Nú er kalt í veðri og snjóþungt en fylgifiskur veðurfarsins eru grýlukerti, sem hanga neðan úr þökum húsa. Grýlukertin eru sum hver mjög stór og getur skapast veruleg hætta ef þau falla til jarðar og á gangandi vegfarendur.