Nóg um að vera í Eyjum næstu daga
Hrekkjavakan verður haldin hátíðleg á föstudaginn n.k.

Það stefnir í líflega daga í Eyjum á næstunni þar sem nóg verður um að vera og fjölbreyttir viðburðir í boði.

Hér er yfirlit um helstu viðburði:

Fimmtudagur:

  • „Ég skal syngja fyrir þig“ fer fram í Höllinni, þar sem Einar Ágúst syngur ljóð Jónasar Friðriks við undirleik Gosanna. Húsið opnar kl. 19.30 og tónleikar hefjast 20.00.

Föstudagur:

  • Hrekkjavakan byrjar kl. 18 og stendur til kl 20. Þá ganga börnin í hús, klædd í skemmtilega búninga, og safna nammi frá þeim heimilum sem taka þátt.
    Kvennakvöld handboltans fer fram í golfskálanum. Húsið opnar 19:30 og byrjar fjörið kl 20:00. Hrund Scheving verður veislustjóri og mun Dr. Victor sjá um að halda uppi fjörinu.
  • Í Eldheimum verða Stefanía Svavarsdóttir og Pálmi Sigurhjartason með tónleika. Húsið opnar kl. 19:30 og hefjast tónleikarnir kl. 20:30.
  • Brothers Brewery verður með hrekkjavökupartý og veitir verðlaun fyrir flottustu búninga.

Laugardagur:

  • Karlakvöld handboltans fer fram í Golfskálanum. Húsið opnar 19:30 og byrjar fjörið kl 20:00. Þórhallur Þórhallsson veislustjóri.

Nýjustu fréttir

Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.