Ný Heimaey VE 1 væntanleg kl. sjö í fyrramálið
Heimaey VE 1, enn með gamla nafnið en hún verður blá.

Öflugra skip og burðargetan 2500 tonn

„Þetta er skip sem hentar okkur mjög vel. Erum að taka skref fram á við miðað við það skip sem við vorum með með áður,“ segir Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélagsins um Heimaey VE, nýtt skip Ísfélagsins sem væntanlegt er til heimahafnar í Vestmannaeyjum klukkan sjö í fyrramálið, laugardag . Kemur það í stað skips með sama nafni sem selt var til Noregs.

Nýja skipið hét áður Pathway og var gert út frá Peterhead í Skotlandi „Heimaey fyrri er mikið happafley en það var kominn tími til að taka stökkið fram á við. Með nýrri hönnun og  getu og afli til að gera betur. Er skref fram á við frá gömlu Heimaey sem var afhent í Síle árið 2012. Ber 2000 tonn á meðan þetta skip er  öflugra og burðargetan 2500 tonn. Fimm árum yngra skip sem segir ekki alla söguna því kynslóð í hönnun skilur þau að, gömlu og nýju Heimaey.“

Nánar í Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

Viljum frekar byggja upp en að rífa niður 
Dæluskipið Álfsnes á Bíldudal
Ótrúlegt að 1.200 manns taki þátt í prófkjöri í svona litlu samfélagi 
Lagt til að ráðist verði í könnunarveiðar á humri
Vel heppnaðri loðnuvertíð lokið
Jón Þór leiðir lista Miðflokksins – Sæunn er bæjarstjóraefnið
Fyrri ferð föstudags felld niður
Elliði Snær markahæstur gegn Svíum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.