Í dag verður opnuð vefgátt þar sem allir geta, sér að kostnaðarlausu, fundið íslenskar orðabækur og leitað í þeim. �?etta fyrirbæri mun kallast málið.is og hefur verið í undirbúningi í nokkurn tíma. Íslensk tunga hefur verið talin í útrýmingarhættu um skeið og því er mikil bragarbót að því að geta leitað sér upplýsinga um rétt og gott og blæbrigðaríkt mál á einum stað á netinu. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun opna formlega opna vefgáttina í dag, á degi íslenskrar tungu.
Ýtarlegri umfjöllun um þessa nýju vefgátt verður að finna í nýjasta tölublaði Eyjafrétta í dag.