Nokkrir einstaklingar í Eyjum hafa tekið sig saman og ætla opna nytjamarkað í Alþýðuhúsinu um helgina, svipað og Kolaportið. Opið verður milli 12 til 17 bæði laugardag og sunnudag og verða bæði nýjar og notaðar vörur á boðstólum og hagstæðu verði, fatnaður á börn og fullorðna, skartgripir og ýmislegt fleira.