Eitt af því sem mér var innrætt í bernsku var að vera góð við dýr og aðra sem ekki höfðu eigin getu eða tungumál til að koma koma réttindum sínum á framfæri. Hún Lóa litla sem er fiðrildatík hefur verið í minni eigu á þriðja ár. Ég er hennar talsmaður og lít á það sem ljúfa skyldu aðframfylgja því að búseta hennar sé eftir þeim lögum og reglum sem vera ber hjá sveitarfélaginu.