Ómetanlegt að fá fram þessi sjónarmið
5. júní, 2025
Víðir Óskar Pétur
Víðir á Goslokahátíð í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur.

Víðir Reynisson þingmaður Suðurkjördæmis fyrir Samfylkinguna var fyrir skemmstu á ferð í Vestmannaeyjum. Segja má að Víðir hafi sterka tengingu við byggðamál og eins við öryggi samfélaga þar sem hann starfaði lengi á sviði almannavarna.

Ritstjóri Eyjafrétta settist niður með Víði þegar hann kom til Eyja og ræddi við hann um þingstörfin og þau mál sem brenna á mörgum í Eyjum. Víðir tók sæti á þingi í lok síðasta árs og segir hann að hann kunni vel við sig í nýju starfi.

„Þetta er eðlilega mikið að setja sig inn í og læra á en það gengur vel. Þetta er mjög skemmtilegt og fjölbreytt. Ég sit í tveimur nefndum einnig. Í utanríkismálanefnd og svo ér ég formaður í allsherjar- og menntamálanefnd. Í báðum nefndum eru gríðarlega fjölbreytt mál að koma inn,” segir hann.

Þarna var engin pólitík

Talið barst fljótlega að frumvarpi ríkisstjórnarinnar um hækkun veiðigjalda. Víðir átti fund ásamt oddvitum flestra flokka á þingi með fulltrúum Útvegsbændafélags Vestmannaeyja nýverið. „Við áttum mjög góðan fund með þeim. Þar var farið vel yfir málin og mjög hreinskiptar umræður. Þarna var engin pólitík. Þarna var bara verið að fara yfir hlutina eins og þeir eru og þau voru búin að vinna ansi góðar greiningar á bæði þessum sjávarútvegsfyrirtækjum hér í Eyjum og líka þessum fjölmörgu þjónustufyrirtækjum sem að sjávarútvegurinn skiptir nánast öllu fyrir. Það eru auðvitað skiptar skoðanir með forsendur í þessum hlutum og hversu bratt á að fara. Það var alveg ómetanlegt að fá fram þessi sjónarmið,“ segir hann.

Allt opið núna

Aðspurður hvort hann muni kynna þingflokki Samfylkingarinnar það sem þarna kom fram segir Víðir að hann hafi þegar gert það og einnig fyrir nefndinni sem fjallar um málið. „Svo erum við einnig búin að fá kynningu frá Samtökum sjávarútvegssveitarfélaga um málið og skoða greiningarnar þeirra. Ég held að það sé mikill vilji til þess að setjast yfir málið og fara vel yfir þessi gögn og útreikninga. Stóra málið núna er að skoða alla þessa útreikninga og fara yfir forsendurnar þar á bakvið. Þannig að við sjáum hvort að niðurstaðan í frumvarpinu er rétt eða hvort að við þurfum að breyta henni eitthvað. Það er allt opið núna,“ segir Víðir.

Eins og þetta blasir við núna. Telur þú það líklegra en ekki að frumvarpið taki breytingum á milli umræðna?

Mér finnst ekki ólíklegt að það taki einhverjum breytingum. Megin vinnan fer auðvitað fram í nefndinni, þó að skoðanaskiptin fari fram í þingsalnum. Það er þannig að þeir sem að sitja í nefndinni sem fá öll gögnin og geta kallað eftir frekari gögnum. Það er eins og menn nefndu á þessum fundi þá telja menn að þær forsendur sem reiknaðar eru í uppsjávarfisknum séu alls ekki réttar. Það þarf eðlilega að fara yfir þau sjónarmið og meta hvort að forsendurnar séu réttar eða ekki. Þetta getur skipt mjög miklu máli. Í mínum huga er mikilvægt að fara vel yfir öll þessi gögn og að menn útiloki ekki neitt í þeirri vinnu.

Skiptar skoðanir innan flokkanna

Nú hefur verið rifjað upp í umræðunni hvað flokksmenn og meðal annars Kristrún sagði í kosningabaráttunni um að þetta ætti að gera í skrefum á 10 árum. Eins sagðir þú eftirfarandi á fundi hér upp í Höll í aðdraganda kosninga:

„Engar byltingar í kerfinu, það er stefnan okkar.  Við höfum talað um og rætt það við útgerðirnar að taka samtal um veiðigjöldin. Það má ekki koma niður á rekstrarhæfni útgerðarinnar. Við höfum vilyrði frá útgerðunum um þau séu tilbúin að taka samtalið ef að við komumst í ríkisstjórn. Það byggir á fyrirsjáanlega til langs tíma.“

„Þetta er auðvitað það sem við fórum með inn í samtalið við myndun nýrrar ríkisstjórnar. Svo eru auðvitað bara skiptar skoðanir innan flokkanna hversu hratt á að ganga í þessu. Það er eins og ég segi málið er enn í meðförum þingsins. En við höfum okkar sýn og eins og okkar stefnu en eins og ég sagði á fundinum að þá sáum við þetta gerast á lengri tíma. Það er hins vegar þannig að þegar menn eru í samstarfi í ríkisstjórn að þá þarf stundum að gera málamiðlanir. Við vildum þá bara fá frumvarpið fram og fá öll gögn fram  til að geta þá unnið málið í þingnefndunum og við sjáum svo hver niðurstaðan verður úr því,“ segir Víðir Reynisson.

Nánar verður rætt við Víði í næsta blaði Eyjafrétta. Víðir ætlar að heimsækja Vestmannaeyjar í dag og vera viðstaddur opinn fund um veiðigjöldin í Akóges. Fundurinn hefst klukkan 17.00 og er opinn öllum.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.