Í hádeginu á morgun, fimmtudaginn 22. ágúst, mun Rannís í samstarfi við Þekkingarsetur Vestmannaeyja halda kynningarfund á Tækniþróunarsjóði í Þekkingarsetri Vestmannaeyja, Ægisgötu 2. Fundurinn byrjar stundvíslega kl. 12 og verður lokið kl. 13. Fundurinn er öllum opin og verður boðið upp á létta hádegishressingu meðan á fundi stendur.
Farið verður yfir möguleika varðandi opinberan stuðning frá Rannís og mikilvæg atriði sem þarf að hafa í huga við umsóknargerð. Styrkjaflokkar Tækniþróunarsjóðs verða skoðaðir auk þess sem farið verður yfir möguleika á skattafrádrætti vegna rannsókna og þróunarverkefna.
